Grautar
Hrísgrjónagrautur
Einföld en skotheld útgáfa.
Hráefni
1 bolli jasmin hrísgrjón
1 bolli vatn
1 tsk. salt
1/2 til 1 lítri mjólk
Rjómasletta
Aðferð
- Sjóðið grjónin fyrst í vatninu í ca. 5 mínútur við lágan hita, setjið svo mjólkina saman við í skömtum á meðan á suðu stendur og hrærið reglulega í pottinum.
- Látið sjóða í 30-40 mínútur eða þar til grauturinn er þykkur og grjónin mjúk.
- Ef þetta á að vera delux útgáfa er málið að setja 1/2 pela af td. kaffirjóma út í þegar suðan er hálfnuð ;)
- Berið fram með kanilsykri.