← Allar uppskriftir

Eftirréttir

Súkku-súkku kaka í bolla

Uppskrift frá Evu Dís litlu systur.

Frá BjössiUm 8 bollar
Súkku-súkku kaka í bolla

Hráefni

250 gr. Smjör 250 gr. Sykur 300 gr. Súkkulaði 170 gr. Hveiti 8 stk. Egg

Aðferð

Hér er uppskrift frá Evu Dís litlu systir af súkkulaðiköku sem er hörð að utan en bara súkku súkku að innan.

  1. 250 g smjör brætt í potti, 250 g sykur og 300 g súkkulaði bætt útí og brætt saman við, síðan sett 170 g hveiti útí og 8 egg, eitt í einu, passa að hafa ekki of heitt þegar eggin eru sett í.
  2. Sett í ca. 8 eldfasta bolla.
  3. Bakað í ca. 25 mín við 200° , eða þangað til fyrsta sprungan kemur á yfirborðið. Þarf lengri tíma ef í færri (stærri) bollum.

Meðlæti:
Best að borða þetta með ís.