← Allar uppskriftir

Aðalréttir

Gratin humarhalar í humar-ostasósu

Aðferðin sem Ottó á Humarhúsinu notaði. Þetta var vinsælasti rétturinn á gamla Humarhúsinu.

Frá BjössiFyrir 4
Gratin humarhalar í humar-ostasósu

Hráefni

Gratinsósa: Humarskeljar Hvítlaukur Laukur Gulrætur Vatn Tómatpúrra Oscar humarsúpukraftur (ef þarf) Tabasco-sósa Salt Gráðostur eða Camembert Smjördeig til þykkingar Rjómi Humar: Stórir humarhalar Rasp Þunnar ræmur af brauðosti (t.d. 26%) Framreiðsla: Blaðsalat Jasmínhrísgrjón

Aðferð

Ottó hvíslaði þessu að mér einhverntímann.
Síðan hef ég aðeins breytt þessu að mínu smekk.

Gratinsósa (tekur langan tíma að gera frá grunni):

  1. Humarskeljar muldar og steiktar í potti ásamt hvítlauk, lauk og gulrótum.
  2. Vatni skellt yfir og tómatpúrru bætt við.
  3. Látið malla í allavega 40 mín. Því lengur því betra.
  4. Sigtað og smakkað til.
  5. Ef vantar humarbragð þá er hægt að bæta við Oscar humarsúpukrafti.
  6. Tabasco sósu bætt við og saltað eftir þörfum.
  7. Gott að setja Gráðost eða Camerbert ost út í.
  8. Svo er sósan þykkt með smjördeigi.
  9. Rjóma laumað út í á síðustu metrunum.

Ég mæli með því að sulla aðeins í hvítvíni á meðan á þessu stendur, þetta verður einhvernveginn bæði skemtilegra og betra fyrir vikið ;)

Humarinn:

  1. Það dugir engnir aumingjahumrar í þennan rétt.
  2. Þetta þurfa að vera hnullungar, drjólar á stærð við kókdósir :)
  3. Humarinn er klipptur að ofanverðu, görn fjarlægð og kjöt tekið úr skel nema rétt endinn og sett upp á skelina.
  4. Raðaða á plötu, sett örlítið rasp á humarinn og þunn brauðostaræma sett ofan á hvern humar. 26% brauðostur er fínn.
  5. Þessu er svo skellt í 180 °C heitann ofninn í örfáar mín.

Tilbúinn þegar osturinn fer að bráðna.

Framreiðsla:

  1. Blaðsalati dreift á diskinn og soðin Jasmín hrísgrjón sett í hrauk á miðjuna.
  2. Humar raðað í kringum hrísgrjónin þannig að halar standi nánast út af disknum.
  3. Gratinsósu hellt yfir humar og hrísgrjón, voila, tilbúið.