← Allar uppskriftir

Aðalréttir

Kjúklingur Tikka masala

Einn af uppáhaldsréttum fjölskyldunnar. Vel þekktur og vinsæll réttur frá Norður Indlandi. Miðlungs sterkur. Tekur rétt tæpan klukkutíma að útbúa með undirbúningi.

Frá BjössiFyrir 4-660 mínútur
Kjúklingur Tikka masala

Hráefni

600 g kjúklingakjöt án skinns 1 dós Patak's Tikka masala 25 g smjör 1 stór laukur 100 g tómatar úr dós, skornir 50 ml rjómi 2–3 hvítlauksrif, skorin smátt 1 tsk. engiferrót, skorin smátt 1 msk. rifin kóríanderlauf (má sleppa)

Aðferð

  1. Hita smjör á vok pönnu og brúna laukinn.
  2. Bæta við engifer, hvítlauk, kjúkling og helming af koríanderlaufum.
  3. Loka pönnu og steikja í 15 mín. Hræra í af og til.
  4. Bæta við vatni ef festist við pönnuna.
  5. Hella Tikka masala sósu og tómötum saman við.
  6. Loka pönnu og steikja í aðrar 15 mín.
  7. Í lokin, hella rjóma saman við og skreyta með rest af koríanderlaufum.

Meðlæti:
Jasmínhrísgrjón
Naan-brauð