← Allar uppskriftir

Aðalréttir

Tómatpúrru nautagúllas a'la Bjössi

Andý vinkona Felix vinar míns eldaði svo geggjaðan tómatpúrru nautagúllas rétt fyrir okkur árið 1986 á Bjarkargötunni. Ég fékk uppskriftina bara í orðum og mundi hana c.a. Búinn að þróa hana síðan að mínum smekk í gegnum árin. Þetta er skotheldur réttur sem getur ekki klikkað. Ef á að elda fyrir marga er tilvalið að elda réttinn (ekki meðlætið samt) daginn áður og hita hanns svo upp þegar gestirnir mæta daginn eftir því hann er jafnvel enn betri upphitaður. Þá er maður heldur ekki á haus í eldamennsku og getur bara verið afslappaður með gestunum.

Frá BjössiFyrir 470 mínútur
Tómatpúrru nautagúllas a'la Bjössi

Hráefni

1 kg nautagúllas 1–2 laukar 3–4 hvítlauksgeirar 1–2 litlar dósir tómatpúrra 3 msk. smjör 3 dl rjómi 2 „slettur“ tómatsósa Salt og pipar eftir smekk Um 1 blár bakki af sveppum

Aðferð

  1. Saxið lauk og hvítlauk og brúnið upp úr smjöri á pönnu ásamt nautakjötinu. Saltið og piprið.
  2. Hellið öllu í pott og bætið rjóma, tómatpúrru og tómatsósu út í. Gott er að bæta líka smá vatni við til að fá meiri sósu.
  3. Látið malla í 75 mínútur — eða í klukkutíma og korter á mannamáli.
  4. Skerið sveppina í sneiðar og látið þá plompa út í með mjúku skvampi. Nú er akkúrat tíminn til að byrja að sjóða jasmínhrísgrjónin!
  5. Látið malla í um 20–30 mínútur á meðan hrísgrjónin eru að sjóða.
  6. Ef sósan er of þunn má þykkja hana með þeirri aðferð sem ykkur hentar.

Meðlæti:
Jasmínhrísgrjón.
Snittubrauð — nauðsynlegt til að dýfa í sósuna!