← Allar uppskriftir

Aðalréttir

Stökkur sesam kjúklingur

Stökkur sesam kjúklingur í klístraðri asískri sósu. Geggjaður réttur.

Frá BjössiFyrir 450 mínútur
Stökkur sesam kjúklingur

Hráefni

Kjúklingur: 5 msk ólífuolía (til steikingar á pönnu) 3 msk maísenamjöl í skál 2-3 egg pískuð í skál 10 msk hveiti í skál 1/2 tsk salt (sett útí hveitið) 1/2 tsk pipar (sett útí hveitið) 2 tsk papriku krydd (sett útí hveitið) 3 kjúklingabringur skornar niður í munnbita Sósa: 1 msk sesam olía 2 hvítlauksrif 1 msk Hrísgrjónaedik 2 msk hunang 2 msk súrsæt chilli sósa 3 msk tómatsósa 2-3 msk púðursykur 4 msk soyja sósa

Aðferð

  1. Kjúklingabitum velt upp úr maísenamjöli, pískuðum eggjum og svo hveiti-kryddblöndunni.
  2. Steikt á pönnu upp úr olíunni í 6-7 mínútur og snúið nokkru sinnum á meðan þar til vel brúnað.
  3. Það getur alveg þurft að gera þetta í nokkrum hollum ef verið er að elda meira en 3 bringur.
  4. Kjúklingur tekinn af pönnunni og geymdur til hliðar.
  5. Öll efni fyrir sósuna sett á pönnuna sem var notuð til að steikja kjúklinginn.
  6. Hrært vel í og suðan látin koma upp og sjóða þar til sósan fer að þykkna.
  7. Kjúklingur settur út í og látið eldast í 2 mínútur.
  8. Borið annaðhvort fram á pönnunni eða sett á fat, sesamfræjum og söxuðum vorlauk stráð yfir.
  9. Hrísgrjón sem meðlæti.

Meðlæti:
Hrísgrjón, sesamfræ og saxaður vorlaukur