← Allar uppskriftir

Aðalréttir

Lasagna - Bjössi

Uppskrift sem fannst á mbl.is og búið er að breyta að smekk Bjössa.

Frá BjössiFyrir 660 mínútur
Lasagna - Bjössi

Hráefni

Lasagna 1 kg nautahakk 1 laukur 2 hvítlauksrif 900 g pastasósa (gott að blanda þessum 2 saman sem eru á myndinni) lasagnaplötur oregano salt og pipar eftir smekk hvít ostasósa (sjá uppskrift fyrir neðan) rifinn ostur (mozzarella og cheddar í bland) Hvít sósa: 170 g rifinn ostur (mozzarella og cheddar í bland) 140 g rjómaostur 200 ml mjólk 1 tsk salt

Aðferð

Lasagna:

  1. Saxið laukinn og hvítlaukinn smátt
  2. Steikið hakkið á pönnu ásamt lauk og hvítlauk, kryddið með salti, pipar og oregano.
  3. Hellið næst pastasósu yfir hakkið og leyfið að malla við vægan hita meðan hvíta sósan er græjuð.
  4. Raðið saman í fat hakki, lasagnaplötu og hvítri sósu og endurtakið 3x nema setjið svo fjórðu umferðina af hakki efst og vel af rifnum osti yfir allt saman.
  5. Bakið við 180°C í um 39 mínútur og leyfið aðeins að standa áður en þið skerið niður.

Hvít sósa:

  1. Setjið allt saman í pott við vægan hita og hrærið þangað til osturinn hefur bráðnað.