Aðalréttir
Chili Con Carne
Uppskrift frá Evu Laufeyju sem maður aðlagar svo bara að eigin smekk og eftir því hvað er til í skápunum.
Hráefni
2. msk ólífuolía
1 laukur smátt saxaður
4 hvítlauksrif
1 paprika, smátt skorin
1 dós chili nýrnabaunir
600 gr. nautahakk
800 gr. hakkaðir tómatar í dós
2 msk. tómatpúrra
400 ml. nautasoð (vatn + teningur)
2 tsk salt
2 tsk pipar
2 tsk paprika
2 tsk cumin
2 tsk oreganó
2 tsk laukduft
1-2 tsk cayenne pipar
Aðferð
Uppskrift frá Evu Laufeyju
Örlítið breytt.
Fyrir 4.
- Hita olíu og smá smjör í potti.
- Steikja svo lauk, hvítlauk og papriku þar til mjúkt í gegn.
- Bæta hakkinu og kryddinu saman við.
- Bæta nýrnabaunum við.
- Bæta við hökkuðu tómötunum, tómatpúrru og nautasoði.
- Látið malla í lágmark hálftíma upp í 2 tíma.
Meðlæti gæti t.d. verið:
Chili flögur, sýrður rjómi, lárperumauk.