Aðalréttir
Pasta í Vodka sósu
Allir í fjölskyldunni eru sammála, þetta er besti pastaréttur sem þau hafa smakkað.
Hráefni
3 matsk. Smjör
1 stk. Skalottulaukur saxaður
2 stk. Hvítlauksgeirar
3 matsk. eftir smekk Tómatpúrra
1/2 tsk. Rauður pipar (eða venjulegur)
2-3 matsk. Vodka
Eftir smekk Kosher salt (eða venjulegt)
4-500 gr. Rör-pasta, t.d. Penne, Rigatoni
1/2 bolli Rjómi
1/2 bolli Nýrifinn Parmesan
Aðferð
Vodka í sósu? Má það?
Já, það má og kemur á óvart.
Það er ekkert Vodkabragð af þessu en hann gefur eitthvað.
Um að gera að breyta uppskriftinni að smekk hvers og eins.
- Hita smjör á stórri pönnu á miðlungshita.
- Bæta skalottulauk og hvítlauk úti, hrærið stöðugt þar til laukurinn er orðinn mjúkur, 4 til 5 mín.
- Bætið tómastpúrru og pipar út í og hrærið þar til laukurinn er byrjaður að dökkna, 5 mín.
- Bætið Vodka við og hrærið, blandið öllu vel saman og gott að skafa upp brúnaða bita á botni pönnunar.
- Slökkva á hitanum undir pönnunni.
- Næst skal sjóða pastað í vel söltu vatni þar til það er "al dente".
- (Það þýðir en stinnt, smá mjúkt en ekki klístað og slepjulegt)
- Taktu frá 2 bolla af vatninu sem pastað sauð í áður en þú sigtar það frá.
- Hita sósuna upp í miðlungshita og bæta við 1/4 bolla af pastavatni og rjómanum, hræra vel í.
- Bæta helmingnum af rifna parmesan út í og hræra þar til hann er bráðnaður.
- Slökkva á hita og setja soðna pastað saman við.
- Bæta rest af rifna parmesan saman við og smá af pastavatninu ef sósan er þurr, bara 1 matskeið í einu.
- Salta eftir smekk.
Meðlæti:
Meiri parmesan og basil lauf.