← Allar uppskriftir

Súpur

Ítölsk grænmetissúpa

Uppáhalds grænmetissúpan mín. Gerist ekki einfaldara og verður bara betri þegar hún er hituð upp næsta dag.

Frá BjössiFyrir 4-641 mínútur
Ítölsk grænmetissúpa

Hráefni

Efni, ekkert heilagt bara til viðmiðunar: Ólífuolía 4 hvítlauksgeirar 2 laukar Hálft blómkálshöfuð 4 gulrætur 2-3 sellerístilkar 1/4 sellerírót 1 dós niðursoðnir tómatar 3 msk tómatpúrra 2 lítara vatn 4 grænmetis teningar Salt og pipar Gott að hafa ferskan parmesan og jafnvel steinselju með súpunni. Getur líka verið gott að bæta pastaslaufum í súpuna og sjóða þau í henni.

Aðferð

  1. Saxa lauk og hvítlauk smátt niður og steikja upp úr ólífuolíu í 2-3 mín. í pottinum.
  2. Skerið blómkál og gulrætur niður og bætið við laukinn og steikið í 3-4 mín.
  3. Setjið 2l af vatni, niðursoðnu tómatana og tómatpúrruna í pottinn.
  4. Látið suðuna koma upp, salt og pipar erftir smekk.
  5. Sjóðið í 20 mínútur og súpan er tilbúin.
  6. Gott að hafa rifinn parmesan til að setja yfir súpuna á disknum og steinselju.
  7. Ef pasta er bætt við súpuna er það sett í eftir að súpan er klár og látið sjóða í henni þar til það er tilbúið.