Meðlæti
Bernes sósa
Bernes sósa fyrir byrjendur, svona skrifa ég það, Bernes!
Hráefni
225 – 250 g smjör
4 eggjarauður
(Notum hvíturnar svo bara í Wiskey Sour)
1 – 1½ msk. bernaise essence
1 – 1½ tsk. estragon (1½ msk. ferskt)
1 tsk. kjötkraftur (fljótandi eða duft)
Saltflögur – má sleppa
Aðferð
Einföld og bragðgóð bernaise-sósa
- Smjör brætt í potti – á vægum hita. Mikilvægt að smjörið bráðni rólega og að vatn blandist ekki saman við (ekki láta lok yfir). Mér finnst betra að bræða smjörið ekki of mikið þ.e. að varast að það verði of heitt (þá þarf að kæla það þannig að hitastigið verði eins og á eggjarauðunum). Smjörinu hellt í sósukönnu – auðveldara að hella
- Eggjarauður hrærðar saman í stórri skál með þeytara (pískara) – sett í heitt vatnsbað (gott ofan í vaskinum) – sjá myndband. Til að sem best lukkist er mikilvægt að eggjarauðurnar séu við stofuhita þ.e. að hitastigið á þeim og smjörinu sé svipað. Gott að tveir hjálpist að – annar pískar eggjarauðurnar (í vatnsbaðinu) á meðan hinn hellir smjörinu rólega út í
- Essens, estragoni og kjötkrafti bætt saman við – pískað saman við
- Það er erfitt að hita sósuna mikið meira þar sem hún getur auðveldlega ystað. Það er alveg hægt að laga sósuna eitthvað áður og hita hana varlega aftur