Meðlæti
Sultaður rauðlaukur
Rauðlaukur sultaður með púðursykri og fleiru. Þetta er vanmetið meðlæti. Frábært með villibráð, hamborgurum, nautinu og lambinu.
Hráefni
80 g smjör
5 rauðlaukar, þunnt skornir
Smá salt
1 bolli af púðursykur
3/4 bolli rauðvínsedik
1/4 bolli rauðvín
Svo er eftirfarandi val og hægt að velja ýmislegt annað sem ykkur dettur í hug í hvert skipti.
Þurkuð Einiber, 10-15 stk.
Soyja sósa, smá sletta
Kreistur safi úr mandarínu, 3 lauf.
Aðferð
- Bræðið smjörið á stórri pönnu á miðlungshita eða þar til smjörið fer að freyða. Bætið þá við lauknum og smá salti, steikið í um 15 mínútur eða þar til laukurinn er orðinn mjúkur.
- Bætið þá sykrinum við og látið malla í um 5 mínútur eða þar til sykurinn er uppleystur.
- Bætið svo við rauðvínsedikinu og öllu öðru og náið upp suðu. Lækkið þá hitann og látið malla í án loks í 20 til 60 mínútur eða þar til orðið vel þykkt.
- Takið af hitanum og berið fram strax eða setjið í vel sótthreinsaðar krukkur og geymið í ísskáp.
- Geymist vel í ísskáp í um 3 daga.