← Allar uppskriftir

Súpur

Rjúpusúpa

Þessi uppskrift er byggð á uppskrift sem ég fann á Gott í matinn. Þessi súpa finnst mér algjörlega frábær og jafnvel toppa rjúpurnar sjálfar.

Frá BjössiFyrir 3–4300 mínútur
Bjössi í kokkabúningi — sjálfgefin mynd þar til mynd af réttinum kemur.

Hráefni

1 stk. rjúpa 1 stk. laukur 2 stk. litlar gulrætur 1 sletta matarolía 1 stk. grænmetisteningur 1 stk. súputeningur 1 stk. sellerístilkur, ekki alveg heill þó 1/2 tsk. timjan 2 msk. rifsberjahlaup eða það besta Villibráðaber frá Hálsi í Kjós 1 sletta púrtvín, ég nota oftast Graham's 10 ára því það er svo gott fyrir kokkinn 2 dl. rjómi 60 gr. gráðostur, ég nota 6 vikna gamlan frá MS Salt og pipar eftir smekk Szechuan Pepper Chilli & Gingersalt frá Jamie Oliver, bara smá af því. Ég nota þetta mikið. Þetta er svona "leynivopnið" mitt. Þetta er frekar sterkt.

Aðferð

Fyrir þá sem langar í rjúpubragð yfir jólin en eiga kannski ekki margar rjúpur er þetta klárlega málið. Mér finnst reyndar góð rjúpusúpa eitthvað það besta sem ég fæ.

Þessi uppskrift er fín fyrir 3-4.

Eldun tekur 5 klukkustundir.

  1. Rjúpan er hamflett. Hjarta, lifur og allt úr sarpinum er notað.
  2. Ef mikið af lyngi og berjum er í sarpinum hefur þú dottið í lukkupottinn. Það er besta kryddið sem völ er á.
  3. Bringurnar eru skornar frá og geymdar þar til alveg í restina. Beinin eru höggvin niður ásamt lærum.
  4. Bein og læri steikt á heitri pönnu upp úr olíu, saltað og piprað og svo sett í pott til suðu með rúmum lítra af vatni. Laukur og gulrætur skorið smátt, brúnað á sömu pönnu og síðan í pottinn.
  5. Svo er grænmetis- og súputeningar sett í pottinn ásamt, hjarta, lifur, lyngi og ber úr sarpinum, timjan, Villibráðarberjum (eða rifsberja hlaupi) og slettu af púrtvíni. Látið sjóða og fleitið af froðu ef hún er. Lækkið svo hitann og látið sjóða við vægan hita í 4 og hálfan tíma að minsta kosti.
  6. Sigtið soðið í annan pott og bætið við rjóma og gráðosti og sjóðið þar til gráðosturinn er bráðnaður. Smakkið til og bætið við meira púrtvíni, gráðosti eða Villiberjum ef þarf. Þykkið með smörhveiti eða maísenamjöli. Mér finnst ekki gott að þykkja súpuna mikið, bara agnarögn.
  7. Rétt áður en súpan er borin fram eru bringurnar skornar í fína strimla og settar út í súpuna.
  8. Verði ykkur að góðu.