Aðalréttir
Hægeldaðir lambaskankar með kartöflumús
Það er fátt betra en vel eldaðir lambaskankar. Þessi uppskrift getur ekki klikkað.
Hráefni
Lambaskankar:
4 skankar
2 gulrætur skrældar og skornar hæfilega fínt
2 sellerý stilkar skornir í bita
1 laukur saxaður
5 dl rauðvín
3 bollar lamba soðkraftur
2-3 greinar ferskt rósmarín
salt og pipar
olía
Kartöflumús:
10 kartöflur
150 g smjör
4 hvítlauksgeirar, saxaðir
1/2 bolli rifinn parmesan ostur
1 bolli mjólk (plús meira ef þarf)
Aðferð
Lambaskankar:
- Kryddið skankana vel með salti og pipar og brúnið síðan vel olíu á pönnu, setjið þá í góðan pott sem má fara inn í ofn. Steikið næst gulræturnar, sellerý og laukinn í olíunni í 8-10 mín, bætið þá víninu út í og sjóðið það niður um helming (ca 10 mín). Þessu er svo hellt yfir skankana ásamt lambasoðinu og rósmarínstilkunum, lokið á og potturinn settur inn í 150 ° heitan ofninn í 4 klukkustundir.
- Eftir 4 klst eru skankarnir teknir upp úr pottinum, mjög varlega annars detta þeir í sundur. Setjið pottinn næst á eldavél og sjóðið soðið aðeins niður ef þarf, smakkið það og kryddið eftir þörfum. Mjög gott er að hafa með þessu góða kartöflumús.
Kartöflumús:
- Takið hýðið af kartöflunum og skerið þær í stóra bita. Sjóðið þær með mikið af salti í tuttugu mínútur. Kartöflurnar eiga að vera mjúkar en ekki þannig að þær detti í sundur við minnstu snertingu.
- Brúnið smjörið á meðan þið sjóðið kartöflurnar. Bræðið smjörið yfir meðalhita á pönnu. Þegar smjörið er bráðnað og byrjað að freyða er hvítlauknum bætt við. Lækkið hitann og hrærið stanslaust í smjörinu þar til það breytir um lit og verður brúnt. Takið af hitanum.
- Hellið vatninu af kartöflunum og setjið þær aftur í pottinn. Hellið smjörinu í gegnum sigti ofan í pottinn en geymið stökku hvítlauksbitana í lítilli skál. Bætið parmesan osti og mjólk saman við kartöflurnar og vinnið blönduna með töfrasprota þar til hún er silkimjúk. Ef þú vilt þynna músina er meiri mjólk bætt við. Smakkið til og saltið ef þarf.
- Berið fram með meiri parmesan osti, saxaðri steinselju og stökku hvítlauksbitunum.