Jæja, sumarið 2012 rúmlega hálfnað og ég (Bjössi) loksins að detta í frí.
Ekki hefur nú mikið verið að gerast hér á þessum vef, þurfti að dusta ryk og köngulóarvefi frá til að skrifa þessar línur enda hafa aðrir miðlar tekið við öllum fréttaflutningi af fjölskyldunni og er þar facebook aðalmálið og höfum við öll staðið okkur ágætlega við að koma fréttum frá okkur til skila þar.
Ég geri ráð fyrir að svo verði áfram og því verður örugglega bara meiri ryksöfnun hér á meðan.