Kæru vinir!

Hvað getur maður sagt þegar 1 dagur er eftir af árinu og ekki ein einasta færsla komin inn á þennan vef. Það er bara eitt sem kemur upp í hugann... Afsakið letina.
Af okkur hér á Kjalarnesinu er allt gott að frétta. Undirritaður hefur verið að vinna óvenju mikið á þessu ári og spilað meira en í mörg síðustu ár. Það verður að hafa allar klær úti til að halda velli í þessu árferði.
Heilsan hefur verið mjög góð hjá fjölskyldunni fyrir utan einhverjar kvefpestir sem tekur ekki að muna eftir eða tala um.
Strákarnir vaxa og þroskast ótrúlega hratt og eru hinir hressustu ærslabelgir. Nú stendur yfir uppeldisátak þar sem foreldrum var hætt að lítast á blikuna varðandi umgengni og almenna mannasiði.
Dýrahald blómstrar og gengur vel nema hvað hænurnar hafa verið í varphléi í rúman mánuð núna. Fróðir hænsagúrúrar segja okkur að það sé eðlilegt en í fyrra verpu þær stanslaust og tóku aldrei pásu.
Kæru vinir nær og fjær, við óskum ykkur hamingju og gleði á nýja árinu og vonandi hittumst við sem oftast.
Kær kveðja, Bjössi og fjölskylda.