Forsíða1.is - Vefkerfi Vörumerki 1.is

Mótmæli íbúa á Kjalarnesi við Vesturlandsveg
Höf: Bjössi 13.06.2009 14:28

Mótmæli á VesurlandsvegiEftir að tveir litlir drengir urðu næstum því fyrir fluttningabíl hér uppi á Vesturlandsvegi í síðustu viku var Íbúum Grundarhverfis virkilega nóg boðið og boðað var til íbúafundar til að ræða málin.

Ég mætti á þennan fund og kom þar fram að íbúrar hér eru búnir að berjast fyrir því í rúm 18 ár að fá undirgöng fyrir börn og gangandi vegfarendur undir Vesturlandsveg. Fyrir 18 árum varð fjögurra ára stúlka fyrir bíl hér upp á vegi og dó. Strax var ákveðið að gera undirgöng, þau hönnuð og teiknuð en svo gerðist ekki meir. Oft hefur litlu mátt muna að börn hafi orðið fyrir bílum þarna en börn fyrir ofan veginn þurfa að fara yfir hann til að komast í skóla og á íþróttasvæði.

Á þessum átján árum sem íbúar hér eru búnir að bíða eftir þessum undirgöngum hefur ýmislegt afrekast og hér eru nokkur afrek:

  • Undirgöng fyrir kýr í Kjósinni
  • Undirgöng fyrir kindur í Hvalfyrði
  • Tvöföldun Reykjanesbrautar
  • 2+1 á Suðurlandsvegi
  • Fullt af jarðgöngum fyrir fámennari staði en Grundarhverfið
  • Leirvogstunguhverfi sem valla er flutt inn í er langt komin með mislæg gatnamót

Þegar maður sér þennan lista verður maður að sjálfsögðu eitt spurningarmerki í framan.... hvað er í gangi?!?

Nú er sem sagt þolinmæðin búin og nú á þetta ekki að viðgangast lengur.

Í gær þá söfnuðust íbúarnir saman uppi á vegi og hægðu á umferðinni frá Reykjavík til að vekja athygli á þessu ófremdarástandi og óréttlæti sem hér er á ferðinni. Langflestir ökumenn sýndu okkur samstöðu með brosi á vör og þumlum upp í loft þó svo að 1 eða tveir hafi verið með dónaskap sem mér finnst reyndar ótrúlega lítið miðað við fjöldann sem þarna fór um milli 17 og 20 á meðan á þessum aðgerðum stóð.

Smelltu hér til að sjá myndir af aðgerðunum

Eftir aðgerðirnar var haldinn fundur með ráðamönnum þar sem öllu var lofað og á að byrja á einhverjum framkvæmdum í næstu viku. Háttvirtur samgöngumála ráðherra, Kristján Möller, sá sér ekki fært að mæta né að senda staðgengil fyrir sig á fundinn. Kristján valdi frekar að vera á fundi á Húsavík um Vaðlaheiðagöng sem er algjörlega í samræmi við það hvernig ráðamenn hafa hugsað um okkar mál hingað til.

Við íbúar hér á Kjalarnesi lofuðum líka að halda áfram aðgerðum ef framkvæmdir lætu standa á sér og við stöndum við okkar loforð.



[Sjá allar fréttir]
| |