Forsíða1.is - Vefkerfi Vörumerki 1.is

Heiða ekki öll þar sem hún er séð
Höf: Bjössi 06.02.2009 18:28

Í gær þegar húsbóndinn á heimilinu kom heim varð hann heldur betur hissa.... jahh, eiginlega bara agndofa þegar hann fór að rannsaka dularfullar hnetur eða eitthvað sem líktist því í músarbúrinu hjá þeim vinkonum Heiðu og Kolgrímu. Eftir að "hneturnar" bæði hreyfðu sig og tístu og augum bóndans hafði verið blikkað að minnsta kosti 5 sinnum blasti sú staðreynd við að ekki væri allt með felldu á heimilinu.

Þarna lágu þá 4 músarungar nýfæddir og minntu á myndir af fósturvísum í fræðibókum. Og ekki nóg með það, heldur hagaði Heiða sér mjög furðulega og algjörlega á áður óséðan hátt. Hún gat ekki látið Kolgrímu nokkra stund í friði og var augljóslega að springa af hvötum náttúrunnar. Enginn á heimilinu hafði nokkurn tíman séð til þessháttar hvata í músarbúrinu áður.

Nú voru góð ráð dýr, Heiða var sem sagt ekki nógu gott nafn á kvikindið og þá var haldinn fjölskyldufundur í snatri þar sem nýtt nafn yrði ákveðið. Húsbóndinn stakk upp á Heiðar snyrtir og fannst það vel við hæfi en Tommi, sem er löggiltur eigandi og þar með alsráðandi og einráður, ákvað að Mikki yrði nafnið og hananú!

Ætli þessum greyjum verði svo ekki gefinn séns á að komast á legg og Dýraríki vantar einmitt stökkmýs þessa dagana svo það ætti ekki að vera vandamál að koma þessum nýju einstaklingum fyrir í veröldinni. Nú, ef einhver vill spreyta sig á svona músarbúskap þá getur hann fengið mýs hjá okkur.

Skoða video upptöku frá 15. feb. 2009

Hér fyrir neðan eru svo nokkrar myndir. Kolgríma er þessi gráa en fyrrum Heiða, nú Mikki, er þessi svarta.

Mikki að passa ungana sína

Nærmynd af lillunum

Kolgríma gefur af spena

Mikki Pabbi tekur fullan þátt í þessu

Svo þarf að lúlla líka



[Sjá allar fréttir]
| |