Forsíða1.is - Vefkerfi Vörumerki 1.is

Lífið silast sinn vanagang
Höf: Bjössi 28.01.2009 22:13

Nú er sá árstími þegar mannfólkið vinnur hvað mest og ekki veitir af meðan allar vörur hækka þvílíkt í verði og að maður tali nú ekki um afborganirnar af lánunum.

María Mist bróðurdóttir Gunnu var hjá okkur um daginn og ég smellti þessari mynd hér fyrir neðan af henni og Sölva þegar þau fóru saman í bað. Það var þvílík stemming. Hlæjandi

Jón Ingi Sveinbjörnsson er farinn til Noregs að vinna og þegar ég heyrði í honum í fyrradag var hann bara hress og leist vel á sig í Stafenger en þar verður hann allavega næstu 3 mánuðina.

Það eru engar aðrar stórfréttir í gangi og ég nenni yfirleitt ekki að setja eitthvað hér inn á síðuna nema eitthvað merkilegt sé að gerast. Svo gerist það stundum að svo margt merkilegt er um að vera að enginn tími gefst til slíks Glottandi

Kærar kveðjur þar til næst,

Bjössi.

María Mist og Sölvi í baði



[Sjá allar fréttir]
| |