Nú styttist í jólahátíðina og mikill spenningur hjá ungviðinu að sjálfsögðu.
Við verðum heima á aðfgangadagskvöld en svo byrja heimboðin eftir hefbundnu sniði. Jóladag verðum við á Álftarnesi hjá Mömmu og á Gamlárskvöld í Blesugrófinni.
Annars er bara allt fínt að frétta, það fjölgaði fjölskyldumeðlimum á dögunum þegar Ólíver veiðiköttur kom færandi hendi með hagamýs ómeiddar í kjaftinum og var keypt sérstakt músabúr fyrir þær. Síðan var þeim sleppt og stökkmýs keyptar í staðin en þær eru hinar hressustu og eru að slá í gegn á heimilinu.
Önnur er kolsvört og var skýrð Heiða en hin er ljósgrá og var skýrð Kolgríma.
Ekki alveg eftir litunum en það er ekki svo nauið!
Heiða hin svarta (Tommi á hana)
Kolgríma hin gráa (Sölvi á hana)