Forsíða1.is - Vefkerfi Vörumerki 1.is

Bjössi skiptir um vinnu
Höf: Bjössi 20.09.2008 12:48

Eftir tæplega árs viðdvöl hjá Icelandair sagði ég upp starfi mínu þar og hóf störf hjá Auðkenni.

Vörumerki Auðkennis

Auðkenni er fyrirtæki í eigu banka og sparisjóða á Íslandi og er helsta hlutverk þess að þróa örugg rafræn samskipti milli bankastofnana, ríkisins og einstaklinga.

Helsta verkefni Auðkennis í dag er að koma á fót rafrænum skilríkjum og auðkenum sem verða staðsett í örgjöfum debetkorta sem bankar og sparisjóðir gefa út til einstaklinga. Við það ættu öll viðskipti á netinu að verða mun öruggari og skilvirkari en áður hefur þekkst. Hægt verður að undirrita skjöl rafrænt yfir netið og er það eitthvað sem margir hafa beðið lengi eftir.

Mitt hlutverk (á almennu mannamáli) hjá fyrirtækinu felst í ýmsum tæknistörfum og mun ég meðal annars setja upp nýjan vef fyrir Auðkenni, reka SharePoint server og síðast en ekki síst taka þátt í uppbyggingu og rekstri þessara rafrænu skilríkja og auðkenna.



[Sjá allar fréttir]
| |