Forsíða1.is - Vefkerfi Vörumerki 1.is

Baltimore - Boston - London
Höf: Bjössi 14.05.2008 21:01

Ég var í vinnuferð í Baltimore eða nánartiltekið í Colombia í síðustu viku frá sunnudegi til miðvikudags og það kom mér nokkuð á óvart hvað þarna er fallegt og mikil rólegheit. Ég tók svo einn aukadag í Boston á heimleiðinni. Ætlaði að líta eftir nýjum Kassagítar en fann ekki rétta eintakið auk þess sem verðið þarna úti var ekkert hagstæðara en hér heima. Úrvalið er þó að vísu nokkuð meira. Verslaði í staðinn bara föt á strákana og þetta líka dýrindis arband á drottninguna á heimilinu.

Í garðinum við Hótelið í Baltimore

Mynd tekin í garðinum við Sheraton Hótelið í Colobia sem við gistum á

Svo í gær átti tengdapabbi 60 ára afmæli og var okkur boðið í grill til þeirra. Við Óskar mágur gáfum kallinum ferð til London sem við skellum okkur í um helgina og leggjum í hann eldsnemma á föstudagsmorguninn. Að auki kemur með okkur bróðir tengdó, Gulli í Njarðvík. Aðalerindið verður að fara á safn í Redding og skoða forláta flugvél sem var í mörg ár biluð á Kópaskeri en er nú búið að gera upp eins og nýja og setja á þetta safn.

Þetta verður án efa stórmerkileg ferð og mun ég gera henni góð skil hér á vefnum eftir heimkomu í næstu viku.

Sölvi í Cars gallanum

Sölvi í Cars galla sem ég keypti í Colombia, flottur!!!



[Sjá allar fréttir]
| |