Núna á laugardaginn var haldið upp á 4 ára afmæli Sölva en hann átti afmæli 25. mars síðastliðinn. Var veislan höfð í tveimur hollum.
Fyrst mættu vinirnir úr hverfinu og leikskólabræður stundvíslega kl. 11:00 og úðuðu í sig pylsum og kökum eins og þeir máttu vera að á milli þess sem þeir voru í leikjum, aðalega stríðsleikjum því þrátt fyrir mikinn fjölda stráka þá var meira en nóg til af allavega vopnum og tólum fyrir alla hér á heimilinu. Magnað hvað þetta virðist vera í genunum á strákum að skylmast og skjóta allt það en svona man ég alveg eftir sjálfum mér. Í dag er þetta bara Star Wars í staðinn fyrir kúrekar og indíánar. Amma Guðrún bakaði fótboltaköku eins og hún gerði fyrir Tomma og sló hún í gegn eins og venjulega.
Svo kl. 15:00 mættu ættingjarnir og börn þeirra og var setið að sumbli fram eftir degi. Sölvi fékk fullt af pökkum og er dótaeign þeirra bræðra að verða eitt stærsta vandamálið hér á heimilinu.
Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir úr afmælinu.



