Forsíða1.is - Vefkerfi Vörumerki 1.is

Frábær ferð til Kaupmannahafnar
Höf: Bjössi 26.03.2008 00:32

Gunna við CristianhavenEftir rúmlega 1 árs bið var loksins drifið í að fara í ferðina sem ég fékk í fertugs afmælisgjöf frá minni fjölskyldu. Amma "Gaur" og Valdimar fóru með strákana í orlofsíbúð til Stykkishólms (innifalið í gjöfinni) og við hjónin flugum út snemma að morgni 20. mars til Kaupmannahafnar. Við vorum búin að bóka Hotel Squere í fjórar nætur en það er mjög gott hótel og frábærlega staðsett innan við 100 metra frá aðalinngangi Tívolísins. Alli kom og tók á móti okkur á flugvellinum og það var ekkert verið að slóra neitt heldur taxi tekinn beint á hótelið, töskunum hennt inn á herbergi og svo stakk Alli upp á að við færum og skoðuðum Kristjaníu.

Við af stað og til að gera langa sögu stutta vorum við þarna frá tæplega 2 til 7 um kvöldið. Þetta var allt öðruvísi en ég hafði ímyndað mér og þarna var góður andi og góð matarlykt sveif yfir svæðinu sem mér fannst ótrúlegt miðað við hvernig húsin litu út. Að sjálfsögðu brá fyrir annari sætri lykt inn á milli en það var eitthvað sem maður vissi nú fyrirfram. Við fengum okkur þarna nokkra öllara á röltinu og settumst td. inn á sóðalegasta "pöbbinn" og skáluðum við tannlausa grænlendinga og finnska listamenn, allt hið merkilegasta fólk. Alli er búinn að lesa allt sem hann hefur komist yfir um Köben og er orðinn ansi fróður um alla króka og kima í borginni. Hann yrði fínasti leiðsögumaður ef hann gæfi sig út fyrir það.

Alli og MaggýEftir þetta ævintýri fórum við að hitta Maggý ásamt Óla og Önnu og við fórum út að borða og enduðum "óvart" á hreint frábærum stað sem heitir Indian Tai restaurant og er í sömu byggingu og hótelið. Alveg magnaður matur en staðurinn er í dýrari kantinum sérstaklega þegar gengið var eins og það var en þennan dag var danska krónan skráð á 17,52 kr. íslenskar. Við vorum nú ekkert að spá í það og enduðum svo kvöldið á einhverjum pöbb/diskóteki sem heitir Heidi's og tjúttuðum þar sem aldrei fyrr.

Svona liðu þessir dagar í matarsukki og fjöri. Við fórum út að borða bæði í hádegi og á kvöldin, hittum Evu Systur 2x og enduðum í mat heima hjá Maggý og Alla með Evu Systur síðasta kvöldið. Svo héldum við heim þann 24. mars og vorum við kominn heim í stofu rétt fyrir miðnætti. Frábær ferð og furðulegt hvað manni líður eins og heima hjá sér þarna í Köben.

Fyrsta kvöldið tekið með trukki og dýfu


[Sjá allar fréttir]
| |