Forsíða1.is - Vefkerfi Vörumerki 1.is

UMFK eru að standa sig vel
Höf: Bjössi 09.03.2008 23:22

Tommi á AkranesiUngmennafélag Kjalarness er með fótboltaæfingar fyrir yngsta flokk stráka og hafa þeir verið að standa sig með stakri prýði í vetur. Fyrst fengu þeir guttana frá Flúðum í heimsókn og spiluðu við þá í u.þ.b. 2 klst. og höfðu klárlega betur þó formlega væri ekki verið að telja mörkin.

Svo í dag var farið upp á skaga og spilaðir 3 leikir og eftir jafntefli í fyrsta leiknum unnu okkar menn næstu tvo nokkuð örugglega og þá sérstaklega þann síðasta sem fór níu núll okkur í hag. Ég verð að segja að Kiddi og Þórður, þjálfarar, hafa staðið sig vel og strákarnir eru að spila boltanum betur en hin liðin. Svo eru þarna nokkrir virkilega sterkir strákar og verður gaman að fylgjast með þessu næstu árin.

Strákarnir eru komnir með nýja glæsilega búninga í grænum og hvítum litum. Minna mig óneitanlega á Völsungs búiningana en það skemmir ekki fyrir, síður en svo :)

Hér eru svo 30 myndir frá mótinu í zip skrá (5,26MB):
[sækja myndir]

UMFK 9. mars 2008

UMFK 9. mars 2008


[Sjá allar fréttir]
| |