Á meðan við vorum í Vegas tók blaðamaður frá barnablaði Morgunblaðsins viðtal við Tomma vegna þess að hann var valin Skyndihjálparmaður ársins 2007.
Hér á eftir er fyrsta blaðaviðtal guttans orðrétt úr greinasafni Moggans:
Hljóp berfættur á nærfötunum í næsta hús og sótti hjálp
Tómas Sveinbjörnsson, 6 ára, var á mánudaginn síðasta valinn ásamt föður sínum skyndihjálparmaður ársins 2007. Við heimsóttum þessa ungu hetju og tókum tali.
Fær maður verðlaun þegar maður er skyndihjálparmaður ársins?
Já, ég fékk sjúkratösku sem ég er með í skólatöskunni, sjúkraspil, sjúkrapenna, endurskinsmerki með ketti á, DVD-spilara og blóm sem ég gaf ömmu minni.
Mér var ekki mikið kalt
En hvers vegna varstu valinn skyndihjálparmaður ársins?
Af því að ég hjálpaði pabba að bjarga mömmu.
Og hvernig gerðir þú það?
Mamma var veik í hjartanu um kvöldið og þegar ég kom fram var pabbi hjá henni. Hann sagði mér að fara til Þórðar sem á heima í næsta húsi við okkur. Ég gerði það og hljóp í mjög vondu veðri á nærbuxunum og nærbolnum og ég var ekki í neinum skóm. Þegar ég var að hlaupa var eins og það væri verið að stinga einhverju í fæturna á mér en samt fann ég ekki fyrir því. Mér var heldur ekki mikið kalt. Ég sagði við Þórð: Viltu hjálpa pabba mínum að lífga mömmu mína við. Hún er að deyja. Og þá kom Þórður með mér og hjálpaði pabba. Þórður er sko svona sjúkraflutningamaður. Ég og bróðir minn biðum svo heima hjá Þórði á meðan það var verið að bjarga mömmu minni og svo komu amma og afi til okkar og við horfðum á mynd saman.
Hvernig var svo að hitta mömmu eftir þetta?
Við fórum til hennar þegar hún var nýbúin að opna augun og gat talað hægt. Þá voru næstum allir sem við þekkjum að heimsækja hana og þá máttum við Sölvi skríða upp í rúmið hennar mömmu.
Ætla að verða meiri rokkari en pabbi
Hvað gerir svona hetja eins og þú á daginn?
Ég er í skólanum, Klébergsskóla, og eftir skóla fer ég stundum í Kátakot sem er svona gæsla. Ég er líka að æfa sund og fótbolta.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir?
Að leika við Sölva, litla bróður minn. Mér finnst líka gaman að leika við besta vin minn sem heitir Arnar en mér þykir samt vænst um Sölva og pabba og mömmu.
Hvað ætlar þú að vinna við þegar þú verður fullorðinn?
Ég ætla að verða sportbílamaður, geimfari, mótorhjólamaður og rokkari. Ég ætla að búa til rokktónlist. Pabbi minn er poppsöngvari í Greifunum en ég ætla að vera miklu meiri rokkari en hann.Við kveðjum þennan duglega strák og þökkum honum fyrir áhugavert viðtal. Það er nefnilega ekki á hverjum degi sem sex ára strákur bjargar lífi mömmu sinnar og vonandi eru ekki margir sem þurfa að ganga í gegnum það. Ef þið lendið í því, krakkar, að geta ekki vakið þann sem er að gæta ykkar, minnum við ykkur á að hringja í 1-1-2 og þá svarar í símann gott fólk sem hjálpar ykkur.