Forsíða1.is - Vefkerfi Vörumerki 1.is

Las Vegas - Dagur 4
Höf: Bjössi 18.02.2008 05:42

Séra ElvisJæja, víð ákváðum að láta ekki yfirlýsingar okkar um giftingu í Vegas verða að einhverju bringutauti, heldur skelltum okkur í dæmið. Völdum að láta Elvis sjálfan (eða því sem næst) sjá um athöfnina og ég veit ekki hvað. Við vorum sótt á eðal limmó og skutlað í Viva Las Vegas Wedding Chappel þar sem brúðhjón eru gift á færibandi. Þetta fyrirtæki er með þetta allt á hreinu og á innan við 20 mín. var búið að undirbúa okkur, næla rós í brúðgumann, græja brúðarvönd fyrir brúðina, gifta okkur með Elvis sem prest og hlusta á hann taka tvö lög, framleiða vídeó, bæði á VHS og DVD, útbúa skírteini, birta nöfnin okkkar á ljósaskiltum utan á kirkjunni og geri aðrir betur. Lögin sem gaurinn tók voru "Love Me Tender" og "Viva Las Vegas", að sjálfsögðu. Það voru teknar einhverjar ljósmyndir en við erum ekki búin að fá þær ennþá. Við fengum aftur á móti vídeóið á leiðinni út og mér tókst að ná nokkrum "screen shots" úr því og birta þær myndir hér. Það koma vonandi betri myndir seinna. Í boði var að hafa athöfnina í beinni útsendingu á netinu en vegna þess að þetta gerðist kl. 05:30 að ísl. tíma sáum við ekki tilgang í því. Svo var okkur skutlað á hótelið á limmanum og restin er trúnaðarmál.

Við erum annars komin með smá heimþrá og getum varla beðið eftir að knúsa guttana okkar. Í dag fórum við að skoða Hoover Dam og ég set inn myndir af því ævintýri seinna. Nenni því ekki núna :)

 

Gengið inn
Gengið upp að altarinu

Séra Elvis
Séra Elvis var ekkert að drolla við þetta

Kossin
"You may kiss the Bride"

Viva las Vegas
Viva Las Vegas, og allt búið



[Sjá allar fréttir]
| |