Vöknuðum snemma, dormuðum og eftir sturtu og snurfus ákváðum við að labba að Luxor hótelinu og borða þar. Okkur var alltaf búið að langa til að sjá þetta hótel sem er á endanum á Strippinu og vorum næstum búin að velja það til að gista á. Það var mjög gaman að sjá þetta loksins í nærmynd með eigin augum.
Nú, frú Guðrún var búin að ákveða að þetta yrði verslunardagur og fórum við í Las Vegas Outlet sem er í útjaðri borgarinnar. Þarna var allt annað verðlag en í miðborginni. Við gerðum þarna bara góð kaup og eftir allt of langan tíma að mati Bjössa var farið heim á hótel og komum við þangað um sexleytið.
Það er engum blöðum um það að fletta að þarna sofnuðu gömlu hjónin eins og ungabörn og þegar við rumskuðum um kl. 22:00 vorum við alveg ónýt og ákváðum að sofa bara áfram. Ég veit ekki hvað ég hefði sagt um svona hegðun þegar ég var 25 ára. Hefði einfaldlega ekki skilið svona kæruleysi. En maður nennir ekki neinu maraþon djammi lengur.
Þegar þetta er skrifað er kominn laugardagur og í kvöld ætlum við að gifta okkur í Hvítu Kapellunni með Elvis Presley þema og öllu tilheyrandi. Það verður væntanlega hægt að fara á vefsíðu kirkjunnar og sjá herlegheitin. Gef upp slóðina á morgun.
Erum líka búin að ganga frá skoðunar ferð til Hoover Dam á morgun sunnudag.
Veit ekki hvenær ég kemst í að skrifa næst, Kv. Bjössi.