Forsíða1.is - Vefkerfi Vörumerki 1.is

Las Vegas - Dagur 1
Höf: Bjössi 14.02.2008 12:13

Jæja, fyrsti dagurinn búinn og hér er stutt lýsing eins og búið var að lofa.

Kampavín í Boing 757Ferðalagið gekk vel, allt á áætlun og okkur til þæginda var fátt fólk á báðum flugleiðum svo við gátum breitt úr okkur og haft það óvenju notalegt. Flugfreyjur Icelandair komust að því að "Elvis" væri á ferðinni og fengum við sér meðferð í kjölfarið á því. Það var splæst á okkur kampavíni og fleiri drykkjum svo við vorum orðinn rallhálf þegar við lentum í Boston. Þar var bara 2 klst. bið í JetBlue vélina sem flaug beint til Las Vegas. Við lentum þar 23:10 á þeirra tíma eða kl. 07:10 á ísl. tíma. Við vorum orðin ansi þreytt og tókum bara Limmó beint á hótelið. Eftir að hafa pantað mat upp á herbergið fórum við beint í bælið og náðum að sofa í nokkrum hollum til kl. 09:00.

Við drifum okkur á fætur og pældum aðeins í því hvernig best væri að klæða sig. Gunna leit út um gluggann niður að aðalinngangi MGM Grand sem við gistum á. "Flott, þarna er einn kall bara á stuttbuxum og bol.... en þarna er ein kona í flíspeysu með vettlinga.... hmmm.... " Við fórum í síðerma boli og Bingó, það var akkúrat passlegt. Hitinn var rétt rúmlega 20°c. Í sjónvarpinu var spáð miklum vindi seinnipartinn og varað sérstaklega við þessu óveðri og höfðum við smá áhyggjur af því. Á leiðinni heim seinnipartinn spurði ég leigubílstjórann hvenær þetta "óveður" skylli á: "It's already here" sagði hann. Ég útskýrði pent fyrir honum að þetta kölluðu Íslendingar varla golu enda fáránlegt að tala um óveður í þessu samhengi hvað þá fyrir Kjalnesinga eins og okkur :).

New YorkEn hvað um það, til að gera langa sögu stutta þá gleymdum við okkur algerlega innan um allar þessar klikkuðu byggingar og áður en við vissum af vorum við búin að vera í rúmlega 8 klst. á röltinu. Kíktum inn í Cesar Palace og þar voru ótrúlegar búðir. Húsgagnaverslun sem heitir Villa Real minnir mig, var með svo ótrúlegum mublum að ég hreinlega gleymdi að taka myndir þar inni. Verðin á öllu voru sky high og kostaði einn kvenleðurjakki til dæmis 16.000 dollara sem mér reiknast til að séu rúmar 1,2 milljónir. Einmitt það! Við fundum þó ógeðslega flottann antik síma sem kostaði ekki mikið og splæstum í hann.

Fórum í Fashon Show mollið og versluðum aðeins, td. íþróttaföt því nú skal farið í gimmið á morgun. Komum upp á hótel um 6 leytið og lögðum okkur í rúma 2 tíma, fórum svo niður að prenta út e-miða á Sirque De Soleil sem týndust í öryggisleitinni í Boston. Þó hótelið sé ekki dýrt þá ná þeir nú alveg af manni aurunum eftir örðum leiðum. Td. kostaði það mig 1.200 kr. að fá að fara á netið í tölvu í lobbíinu sem er tengd við prentara og prenta út 2 A4 blöð. Internet tengingin á hótelinu kostar 900 kr. á sólarhring o.s.fr.

SíminnFórum svo seint út að borða eða rúmlega 23:00 og kallin varð nú aðeins að gambla á leiðinni upp á herbergi. Ætlaði að skipta 50 dollurum og skellti mér í rúllettu. "Please put the money on the table" sagði gjafarinn og tók ekki í mál að taka við peningnum beint úr hendi mér. "It's 25 dollar minium bets" sagði hún svo hneyksluð þegar ég ætlaði að kaupa spilapeninga fyrir 50 dollara. Ég bætti í og keypti fyrir 100. "Bjössi, hvað ertu að gera" sagði frúin taugaveikluð. "Please take your phone of the table" sagði gjafarinn aftur og mér fannst ég vera að missa kúlið nokkuð hratt en sem betur fer var enginn annar við þetta borð. "Excuse me" sagði ég auðmjúkur "It's my first time gambling". Jæja, loksins brosti kvikindið og snéri loksins hjólinu. Ég fór varlega í þetta, veðjaði bara á svart, rautt, sléttar og oddatölur og vann í öllum fyrstu 5 tilraunum. "Beginners luck" sagði ég afsakandi. Gjafarinn gretti sig á móti, átti sennilega að vera bros. Ég fékk fljótlega leið á þessu og tékkaði út með 260 dali eða 160 í plús... ágætis byrjun.

SpilapeningarSvo fórum við upp á herbergi, ég að skrifa þetta og Gunna í risanuddbaðið að skrúbba sig upp úr einhverjum töfra smyrslum sem einhver andskoti prangaði inn á mig í einu molinu. Já ég sagði MIG,  ekki Gunnu... ótrúlegt og ég var ekki einu sinni fullur.

Klukkan er rúmlega 4 hér eða 12 á hádegi á íslandi.
Farinn að sofa, við ætlum að taka því rólega til að byrja með á morgun enda Valentínusar dagurinn hér.
Kveð í bili, Bjössi.

P.s. Nokkrar myndir hér fyrir neðan ef þú nennir að skrolla niður!

Gunna í Limmó
Nýlent í Vegas og að sjálfsögðu tekinn Limmó frá flugvellinum á hótelið

MGM Grand
Komin á ról fyrsta morgunin. Gunna fyrir utan hótelið

New York hótelið
Bjössi með New York New York hótelið í baksýn

Flottur
Þessi snillingur leyfði mér að taka mynd gegn vægu gjaldi.

Byggt á fullu
Og það er byggt á fullu. Vegas er búin að vera stækka hraðast allra borga lengi

Paris
Paris hótelið. Öllu þjappað saman í stórkoslega klessu.

Paris
Gunna fyrir utan Paris hótelið, þetta er náttúrulega ekki í lagi!

Cesar Palace
Bjössi fyrir utan einn af inngöngum Caesar Palace. Takið eftir hattinum!!!

Flott búð
Gunna í molinu í Caesar Palace

Kallinn í Cesar
Bjössi í molinu í Caesar Palace

Wynn
Wynn hótelið er eitt af þeim glæsilegustu í Vegas

Fashion Shwo
Fashion Show molið sem við versluðum í



[Sjá allar fréttir]
| |