Forsíða1.is - Vefkerfi Vörumerki 1.is

Skyndihjálparmenn ársins 2007
Höf: Bjössi 11.02.2008 23:36

Fréttatími RÚV - Bogi ÁgústssonJah, detti mér nú allar dauðar lýs úr hári... þetta kom svo sannarlega skemmtilega á óvart. Við Tommi þökkum rjóðir í kinnum þennan mikla heiður. Við vissum ekki einu sinni að við værum tilnefndir þegar símtal kom og okkur tilkynnt að við hefðum orðið fyrir valinu. En... frábært og við þökkum fyrir okkur.

Við mættum niður í neyðarlínu í Skógarhlíðinni í kvöld og tókum formlega á móti viðurkenningu og verðlaunum frá Rauða krossinum og N1. Svo fórum við þrjú, Tommi, Gunna og ég í sjónvarpsviðtöl hjá Stöð 2 og RÚV. Tommi stóð sig eins og hetja í sínum fyrstu sjónvarpsviðtölum og má sjá viðtalið hjá RÚV hér [Sjá frétt á RÚV] og viðtalið hjá Íslandi í dag hér [Sjá vital á Stöð 2]


Bjarvætturinn TommiMeðal vinninga var 16 klst. námskeið í skyndihjálp á vegum Rauða krossins og ætla ég að drífa mig á það við fyrsta tækifæri. N1 var heldur ekki að spara það, gaf okkur 15.000 kr. inneignarkort, DVD ferðaspilara, USB minniskubb, 5 DVD barnamyndir, 2 ferðatöskur og margt fleira.

Það hafa svo hinir ýmsu vefmiðlar fjallað um þetta og eru nokkrir þeirra hér:
Rauði kross Íslands
mbl.is
640.is Mannlíf á Húsavík
TSC Snæfellsnesi
Fréttavefur fjölmiðlafræðinema



[Sjá allar fréttir]
| |