Forsíða1.is - Vefkerfi Vörumerki 1.is

Viva Las Vegas
Höf: Bjössi 08.02.2008 01:19

Næsta þriðjudag verður lagt í hann til Las Vegas. Við ætlum að mála bæinn rauðann og hver veit nema okkur detti í hug að taka svona eins og eina giftingu í "lúgu-kirkju" (drive through) eða í White Chapel með einhverju fáránlegu þema. Í boði er td. Austin Powers, Elvis og Blóðsugu þema svo eitthvað sé nefnt. Pælið í því.... að vera vinna við þetta: "Bless elskan, ég er að fara gifta á eftir.... hvar eru vígtennurnar mínar?" Ha, ha.... skemtileg pæling.

Við verðum á MGM Grand hótelinu á geðveiku herbergi, 65 fermetrar með potti og öllu. 

Celebrety Spa Suite

Við erum búin að kaupa miða á KÀ Cirque du Soleil sem er ótrúlegt show og svo er pælingin að fara að skoða Grand Canyon og kannski Hoover Dam. Annars ætlum við ekkert að vera að plana þetta of mikið heldur bara "chilla" og spila þetta af fingrum fram.

Við lofum að setja myndir inn á síðuna og skrifa fréttir jafnóðum frá Vegas.

[Sjá allar fréttir]
| |