Auðvitað vann hann, hinir keppendurnir voru reyndar rosalega góðir líka en að sjálfsögðu hélt ég með mínum manni og hann var frábær!!! Vikuferð fyrir tvo til vegas í verðlaun og við erum þvílíkt ánægð, geðveikt!!
Það var rosalega gaman, við gistum á Hilton og strákarnir voru hjá mömmu hans Bjössa og Valdimari. Við borðuðum á Vox með Gunnari Má og Lindu í hádeginu og hittum auk þess fullt af frábæru fólki, Sigrúnu og Sigga og Dabba og hans konu og litla Helga Jakob. Ekki séð þau lengi. Svo hittum við Óla og Steingerði á árshátíðinni þannig að það var bara öll fjölskyldan, nánast...ekki þó börninn þeirra Óla og Steingerðar en þau voru bara öll boðin í heimsókn og vonum við að eitthvað verði úr því sem fyrst!!!
Við fórum svo til langömmu og langafa en þar voru strákarnir og tengdó, Guðrún og Valdimar pössuðu fyrir okkur og gekk mjög vel, strákarnir voru rosalega þægir og góðir. Þar voru Tobba og Finnur og svo mættum við Hadda, Siddý og Önnu þannig að þar var nánast heil fjölskylda líka. Gaman að hitta allt þetta fólk.
En allavega - Viva Las Vegas - we are on our way!!!!!!!!!