Forsíða1.is - Vefkerfi Vörumerki 1.is

Árshátíðin nálgast
Höf: Gunna 23.01.2008 21:51

Jæja þá, nú er farið að styttast í árshátíðina hjá Icelandair.  Við erum að setja okkur í stellingar, búin að kaupa dressin, fara í litun og plokkun, setja nýjar neglur með skrauti og (Bjössi reyndar sleppti litun, plokkun og nöglum....).....já það er eins gott að maður klúðri þessu svo ekki með veikindum eða einhverju öðru hundleiðinlegu.

Annars er allt gott að frétta, nema að auðvitað fékk Tommi magapestina sem er að ganga og er hægt og bítandi að ná henni úr sér, en kvartar þó aðeins um magaverki og er ansi lystarlítill.  Já þetta er ótrúlegt ha, ég var alveg handviss að enginn myndi veikjast á þessu ári en svona er þetta nú bara!

Já við hjónin erum búin að vera ansi dugleg við að undirbúa okkur fyrir þennan fögnuð sem er nk. laugardagskvöld.  Annars langar mig svo voðalega mikið á þorrablótið í Kjósinni, ég nebblega hef aðeins fengið að njósna um skemmtiatriðin og eru þau algjör snilld, auk þess sem Kjósverjar eru bara algjör snilld,  a.m.k. allir sem ég þekki.

Ég fór til Karls Andersen, hjartalæknis, í gær og sagði hann mér að allt liti vel út hjá mér en ég þarf áfram að fara vel með mig, éta lyf, éta hollt, hreyfa mig og allt þetta leiðinlega.  Betra væri bara að kaupa Camel og vodka og liggja svo í sukkinu!!!!!

Já við erum aldeilis búin að undirbúa okkur fyrir herlegheitin á laugardagskvöldið, Bjössi bara verður að vinna Elvis keppnina og ég bara verð að haga mér.......hm....já það..!!

Synir okkar fengu búninga fyrir Öskudaginn og eru agalega ánægðir með sig og "pósuðu" í gærkvöldi.  Þeir verða sum sé "Jack Sparrow" og eru frekar flottir, sjá mynd!

Sjóræningjarnir ógurlegu

En nú verð ég að fara að hvíla mig, nú er miðvikudagur og ekki seinna vænna en að skella sér í háttinn fyrir "bjútí blundinn".  Er það annars ekki þannig að því lengur sem maður sefur, því fallegri verður  maður?  Ég bið bara Bjössa að vekja mig um hádegi á laugardag, asskoti verð ég orðin falleg þá mar!!!!

Hafið það náðugt, þið heyrið meira frá okkur síðar.



[Sjá allar fréttir]
| |