Veiðieðlið er ríkt í honum Ólíver okkar. Oft höfum við hlegið þegar hann liggur í sófanum, og sér svo allt í einu fugl eða guð má vita hvað úti í garði. Þá heyrast furðuleg hljóð úr honum, svona eins og sambland af mjálmi og jarmi.
Í haust og vetur hefur hann fært okkur einar 8 mýs og 3 fugla, allt saman á lífi. Þetta hleypir fjöri í heimilishaldið þegar hann kemur stoltur með fugl í kjaftinum og sleppir honum svo við fætur mínar eða Gunnu og fugl greyið flýgur svo um allt inni þar til við náum honum. Þá eru þeir yfirleitt skoðaðir og fá svo gistingu í eina nótt með fullu fæði, Tomma og Sölva til mikillar ánægju, en er svo sleppt daginn eftir.
Það sama á við með mýsnar, Óliver kemur inn með mús í kjaftinum og þá mjálmar hann sérstaklega og erum við farin að þekkja það mjálm. Þá er músin tekin af honum, hún skoðuð og hingað til hefur bara ein ekki lifað þetta af. Hinar hafa fengið gistingu í 1 til 3 nætur meðan þær hafa verið að jafna sig með lúxus fæði að sjálfsögðu. Hér á myndinni má sjá þegar ég er að sleppa einni af þessum greyjum. Þær eru ekki stórar.
Mér finnst einhvernveginn ekki hægt að skamma hann fyrir þetta, veiðieðlið er svo ríkt í honum. Það hefur alla vega aldrei verið neinn músagangur hjá okkur en ég ein vinkona okkar í hverfinu var að fá sér kött því það hafa komið 12 mýs í gildrur heima hjá henni í vetur. Ég ætti bara að lána henni Ólíver í nokkra daga.