Jæja, nú er maður byrjaður aftur í skólanum, greinilegt að Tomma finnst ekki slæmt að vera með mömmu gömlu í skólanum. Ég reyndar vinn bara til kl. 11 fjóra daga í viku, svona til að byrja með. Annars er þetta fínt nema að mér finnst blessuð börnin mættu mörg hver vera örlítið kurteisari og tillitssamari. En dagurin var svo sem tíðindalítill en ég fór þó í góðan göngutúr, næstum út að kirkju en ég fer alla leið þangað næst, svona til að ná alveg klukkutíma.
Bjössi keppti í "Elvis" í dag og ég held enn með honum þrátt fyrir að einn keppenda hafi mætt í þyrlu....já, já ég meina alvöru helicopter.... og búinn að fara til tannlæknis til að láta deyfa á sér efrivörina. Hvað svo sem það nú þýðir ha??? Huh, sá hefur líklega ekkert getað sungið, varð mér að orði, stend enn með mínum manni og er farin að pakka niður fyrir Vegas ævintýrið mitt!!!! Við sjáum hvað setur, alltaf að vera bjartsýnn!!
Fínt veður í dag, þó blés aðeins á okkur fyrst í morgun en við búum nú einu sinni á blessuðu Kjalarnesinu, síðan auðvitað varð þvílík bongóblíða seinnipartinn. Líka frekar hlýtt eða um 5°C. Lífið er yndislegt og ég ætla ekkert að flytja í bæinn þó að mamma sé að reyna að fá mig til þess.
Lengi lifi grannarnir, húrra fyrir þeim!
Kveðja,
Gunna