Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.
Miklar vonir eru bundnar við þetta ár á þessu heimili. Vonir um sjúkdómalaust og viðburðalítið ár!!! A.m.k. viðburðalítið hvað stóráföllum viðkemur.
Nú á allt að fara að ganga sinn vanagang en stundum bara gerist það ekki, frúin mætti t.d. bara einn dag í vinnuna og lagðist svo í rúmið og var þar næstu tvo vinnudaga, þ.e. mánudag og þriðjudag. Hún ætlar samt að hunskast í vinnuna á morgun, 9. janúar. Vonum bara að það gangi. Jólaskraut er nú loks komið í hvíld til næstu jóla og er ansi tómlegt finnst manni svona fyrst eftir að það fer en svo bara venst þetta.
Bjössi ætlar að taka þátt í einhverri svaka "Elvis-keppni" í vinnunni sinni þar sem úrslit verða kynnt á árshátíð félagsins (Icelandair) þann 26. janúar 2008. Í vinning er vikuferð fyrir tvo til Vegas og er ég handviss um að hann malar þetta. Ég væri allavega til í að skreppa til Vegas og kannski bara giftast kallinum aftur í lúgusjoppu eða eitthvað.
Annars er allt gott að frétta en ég vildi svo sannarlega að ég væri að fara á Reykjalund á morgnana í staðinn fyrir vinnuna, ekki það að það er styttra í vinnuna, en hitt var bara svo þægilegt; skella sér í íþróttagallann og vera bara að hugsa um sjálfan sig. Það er sko ljúft líf en þó ekki hægt að stunda það til lengdar en maður má nú láta sig dreyma.
Framundan er bara gleði. Fengum öll gjafabréf á Gosa í Borgarleikhúsinu frá Guðrúnu (mömmu Bjössa) og Valdimari í jólagjöf og ætlum að skella okkur í leikhús á laugardaginn kemur. Svo er árshátíðin hjá Icelandair 26. janúar, daginn eftir afmælið hans Bjössa. Því miður hittir það á Þorrablót Þingeyinga og af því má ég helst ekki missa, nú er bara að velja og hafna og völdum við árshátíðina. Svo er bara að hafa gaman af þessu öllu saman. Við eigum líka eftir að fara til Danmerkur í ferðina sem Bjössi fékk í fertugs afmælisgjöf frá sinni fjölskyldu þannig að það er bara gleði og glaumur framundan.
Þar til næst, ble, ble.
Gunna