Jæja, nú er orðið heldur betur jólalegt á Esjugrundinni. Búið að skreyta jólatréð og setja upp það skraut sem var valið þessi jólin. (Nebbla til meira en einn umgangur af skrauti á þessu heimili.) Strákarnir eru að deyja úr spenningi og foreldarnir að deyja úr svefnleysi vegna þess að strákarnir sofa lítið, þá aðalega sá eldri. Sölvi er ekkert að gera veður úr þessu öllu. Við viljum bara óska öllum gleðilegra jóla og okkar mottó þessi jólin er: "Þetta er ekki svo nauið".
Setjum svo hér með nokkrar myndir af jólaskrautinu hjá okkur.