Jæja, loksins virðist þessu veðravíti vera að ljúka.
Skaðinn hér hjá okkur er:
Ég fór með þvottavélina í viðgerð á mánudaginn til Smith og Northland og var gert við hana samdægurs (þeir fá prik í kladdann fyrir það) og ég fór í Elko og keypti nýtt vídeó með DVD spilara líka. Fékk svo nágranna minn hann Steingrím til að halda á þvottavélinni með mér inn og hann færði mér rauðvínsflösku. Haldiði að það sé munur að eiga svona nágranna, kvabba í þeim og manni bara fært rauðvínsflaska bara að því að hann á svo mikið af því en drekkur það ekki sjálfur.
Þetta var líka bara önnur vika mín hjá Icelandair og þar varð nú meiri skaði en hér heima vegan veðurhamsins. Sérstaklega á fimmtudagskvöld og föstudag og var ég vakandi meira og minna alla fimmtudagsnóttina að setja inn veður- og seinkunarfréttir á alla vefi félagsins um allan heim. Ég get ekki ímyndað mér hvað svona vesen kostar flugfélög. Kannski sé ég einhverjar tölur um það seinna.
En, sem sagt, húsið hér er enn í heilu lagi eftir mesta veðravíti hér uppfrá síðan við fluttum fyrir 4 árum og allir við fína heilsu.
Ég skaut svo inn mynd hér fyrir neðan sem sýnir vindhraða á Esjubergi Kjalarnesi 14 til 16 des.
Yfir og út.....