Forsíða1.is - Vefkerfi Vörumerki 1.is

Desemberdagar
Höf: Gunna 11.12.2007 23:08

Það er alltaf jafn gaman að vera á Reykjalundi, þrótturinn vex dag frá degi og er ég að komast í þokkalegasta form.  En ég er víst aldrei fullkomlega ánægð þannig að "betur má ef duga skal" sagði einhver einhverntíma og það verður sennilega mottóið mitt til að byrja með a.m.k.  Sem vonandi þýðir að ég haldi áfram á þessari líkamsræktarbraut, þó að sennilega fari ég seint í blakið...!!! 

En þrátt fyrir allt þá eru að koma jól og gengur sá undirbúningur ágætlega nema að það var auðvitað búið að tylla upp jólaköllum úti þegar gerði aftaka veður og annar þeirra fauk um koll (þrátt fyrir að vera kyrfilega festur) og brotnaði á honum hausinn....nú eru góð ráð dýr.  Við verðum auðvitað að hafa jólakall en Bjössi finnur ekki enn neinn í staðinn.  Það hlýtur þó að ganga fyrir jól.  Annars er verið að spá öðrum hvelli þannig að það er alveg spurning hvort maður á ekki bara að ímynda sér jólakallana í ár!

En hvað sem jólaköllum líður, þá stóð til að við "Kópaskersgömlurnar", eins og ég segi stundum, færum út að borða í gærkvöldi en einhver hafði vit á að aflýsa og verður því þeirri skemmtun frestað um stund. Það þykir ekki gott að fresta hjá okkur þar sem oftast hefur reynst erfitt að finna tíma til að hittast.  Það er synd því það er nú alltaf svo gaman þegar við hittumst.

Jólaundirbúningur að öðru leyti (annar en blessaðir jólakallarnir) hefur gengið ágætlega og er þetta allt að smella saman.  Enda verður bara skreytt um þessi jól en lítið mun verða um þrif. Ég geri bara eins og konan, set þrif í skálar út um allt, deyfi ljósin og kveiki á nokkrum ilmkertum, málið dautt og jólin, jólin allsstaðar.

Best að linni; sum sé allt gott að frétta af Kjaló og engin umtalsverð veðratjón ennþá.

Góðar stundir.

Gunna



[Sjá allar fréttir]
| |