Í gær var síðati dagurinn minn hjá MasterCard eða Borgun hf. eins og það heitir núna. Eftir að hafa verið kvaddur með gjöfum og kossum um daginn var svo hin árlega jólagleði fyrirtækisins um kvöldið og þar var ég enn meira kysstur.
Það er frábært fólk að vinna þarna og ég á eftir að sakna þeirra allra. Ef þú sem þetta lest ert einhverntíman að hugsa um að skipta um vinnu þá fær þessi vinnustaður fulla einkun.
Það verður óneytanlega skrítið að fara frá stað þar sem maður er öllum hnútum kunnugur og byrja í nýrri vinnu á mánudaginn þar sem maður veit ekki neitt. En, það er líka spennandi og kannski gott að hrista svona upp í málunum á 7 til 8 ára fresti. Það kemur í ljós.
Höf: Bjössi 03.12.2007 23:01
Mátti til með að bæta við myndinni hér fyrir neðan í þessa frétt.
Við hjónin skutumst á laugardeginum eftir jólagleðina í síðasta skipti upp í Úthlíð í MasterCard bústaðinn sem við höfum verið svo dugleg að nota í gegnum árin. Áttum þar virkilega notalega stund. Fyrsta barnlausa ferðin í bústað síðan Tommi fæddist. Svona var útsýnið á sunnudagsmorguninn. Ekki amalegt. Þessi mynd var tekin á GSM símann minn.