Forsíða1.is - Vefkerfi Vörumerki 1.is

Tommi að skána af veikindum
Höf: Bjössi 27.11.2007 21:12

Eftir mikil óþægindi virðist Tommi loksins vera að skána af því sem við höfum kallað "Pissustand". Það lýsir sér þannig að hann er stöðugt með mjög sterka tilfinningu um að hann þurfi að pissa og er allaf á klósettinu greyið. Hann fór í 2 aðgerðir vegna þessarar óværu, blöðruspeglun í nóv 2006 og svo var forhúðin víkkuð í maí á þessu ári. Kristján manekkihversson og Orri Ormarsson gerðu þessar aðgerðir.

LyfHann skánaði ekkert við þetta en eftir að hann var settur á tvö lyf í maí, eiginlega út í loftið, þá var hann orðinn mun betri eftir 5 daga inntöku. Þetta voru lyfin Furadantin (sýklalyf) og Detrusitol Retard (lyf sem virkar á þvagblöðu). Hann var á þessum lyfjum í 6 vikur og var orðin alveg góður eftir þann tíma og í rúma 4 mánuði eftir það eða þangað til í núna október síðastliðnum.

Þá fór þetta að byrja aftur hægt og svo stígandi. Ég hringdi í Orra Ormarsson barnaskurðlækni og eftir það samtal var ákveðið að prófa að gefa honum Detrusol aftur. Það hafði nákvæmlega engin áhrif, og honum versnaði meðan hann var á þeim. Við fórum í skoðun í byrjun nóvember til Orra og það var tekið þvagsýni í ræktun eins og áður. Kom ekkert út úr því. Við fórum aftur til Orra í flæðimælingu og skoðun, ekkert. Orri talaði um að setja hann aftur í blöðruspeglun, ég er eiginlega ósamála því. Ég bað hann um að skrifa upp á sama skamt og honum skánaði af síðast og hann gerði það.

Að auki er hann allaf hóstandi hvellum þurrum hósta og svo ræskir hann sig í öðrum hverjum andardrætti. Ég fór í ECC og keypti tvö rakatæki og svo sérstakt jónatæki sem hreinsar loftið í húsinu. Ég hef haldið rakanum stöðugum í 40% og eitthvað hefur hóstinn skánað en er samt alls ekki farinn.

Núna þegar þetta er skrifað 29.11.2007 er hann búinn að vera í rúma 4 daga á Furadantin og Detrusitol Retard og hann er mikið betri af pissustandinu. Sem sagt, hann virðist vera með einhverja sýkingu sem þeir geta ekki fundið en Furadantinið virðist láta honum líða betur. Ég er að hugsa um að vera ekkert að láta svæfa hann aftur til að skoða blöðruna enda er verið að spá í hvort einhver tregða er í þvarásinni sem ég er sannfærður um að sé ekki málið. Ég ræði það við Orra þegar hringt verður í mig til að boða hann í þessa speglun.

VIÐBÓT: 
Höf: Bjössi 07.12.2007 13:50
Tommi kláraði Furadantin fyrir 2 vikum og er mikið betri en þegar hann var verstur. Spurning hvort hann sé þó orðinn fullgóður því hann fer enn 3-4 ferðir á klósettið eftir að hann er kominn upp í rúm á kvöldin. Ég talaði við Orra rétt í þessu hann ætlar að skrifa upp á meira af Furadantin sem Tommi á að taka áfram yfir hátíðarnar og svo verðum við í sambandi í janúar 2008. 



[Sjá allar fréttir]
| |