Forsíða1.is - Vefkerfi Vörumerki 1.is

Enn af Reykjalundi
Höf: Gunna 27.11.2007 17:34

Sæl öll

Jæja þá var ég í viðtali við lækninn minn hann Magnús Jónasson á Reykjalundi.  Ég er víst svona svaðalega merkileg manneskja að mér var boðið að vera hjá þeim fram að jólum, þ.e. tveimur vikum lengur en upphaflega var áætlað.  Það leggst mjög vel í mig því hver dagurinn er öðrum betri.  Þarna er líka frábær félagsskapur og allir yndilslegir. Ástæaðan fyrir lengingu ku vera sú að með þessu móti verð ég í enn betra  formi og e.t.v. meiri líkur á að ég haldi áfram með það sem hafið er. 

Aðrar fréttir eru þær að Tommi er allur betri og allt heimilis- og fjölskyldulíf er á mikilli uppleið og vonum við að það ár sem senn rennur í aldanna skaut, sé einstakt í sinni röð, a.m.k. hjá minni fjölskyldu, og að annað eins muni aldrei koma "til baka". 

Nei það er næsta víst að næsta ár verður frábært.

Hafið það gott.

Kv. Gunna



[Sjá allar fréttir]
| |