Forsíða1.is - Vefkerfi Vörumerki 1.is

Velgengni á Reykjalundi, heimilislíf, o.fl.
Höf: Gunna 25.11.2007 15:07

Jæja þá er ég búin að vera á Reykjalundi í tvær vikur sem þýðir að það eru aðeins tvær vikur eftir.  Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða. Þar gengur allt vel og er yndislegt fólk þarna bæði starfsfólk og "sjúklingar".  Oft er spjallað mikið og kátt á hjalla í kaffi- og matartímum. Formið hjá frúnni er allt á uppleið og er allt eins víst að hún komist í kjólinn fyrir jólin!!! 

Annars gengur heimilislífið sinn vanagang.  Drengirnir eru mikið á ferðinni og eru rosalega duglegir að vera úti að leika.  Sölvi á góða vinkonu, Sigrúnu Maríu, sem á heima ská á móti okkur og Tommi á góðan vin í næsta húsi, hann Arnar Jóhann.  Oftast gengur vináttan vel fyrir sig.  Sigrún María kemur samt nánast aldrei til okkar og leikur grunur á að henni sé ekki sérlega vel við heimilisföðurinn en það er þó ekki staðfest!!! 

Eins og er er andstyggilegt veður en við náðum nú samt að fara í gönguferð í fjöruna í morgun ég, Tommi og Sölvi. Loksins fékk pabbi að hvíla sig.  Þar hittum við Elínu og Pollý.  Veðrið beit og reif í okkur svo við flýttum okkur heim í hlýjuna. Sem sagt allt gott að frétta. (í þetta sinn)

Læt vita ef eitthvað markvert gerist.

Kv. Gunna



[Sjá allar fréttir]
| |