|
Við leggjum metnað okkar í að bjóða upp á úrval
fjölbreytilegra rétta sem unnir eru úr því ferskasta hráefni sem
völ er á hverju sinni.
Við bjóðum daglega upp á ljúffengt 50 rétta hlaðborð.
Bæði er boðið upp á heita og kalda rétti auk þess sem gestir geta
valið úr tveimur tegundum af súpum sem fylgja með. Að sjálfsögðu
fylgir svo úrval nýbakaðra brauða með öllum herlegheitunum.
Gestir geta til dæmis valið um hvítlauks-, sólkjarna-, heilsu-,
eða kryddbrauð auk fjölda annarra brauða. Boðið er upp á
gerlaust brauð bakað úr líffrænt ræktuðum efnum og óerfðabættu hveiti.
Við leggjum mikið upp úr gæðum, ferskleika og úrvali í matreiðslu
okkar. Hjá okkur færðu t.d. alltaf ferskt og gott grænmeti,
heimalagaðar salatsósur, ilmandi ítalska pastarétti, ljúffenga austurlenska
hrísgrjónarétti, alls kyns indverska rétti, mexíkóskan mat og osta-
eða ávaxtasalöt svo fátt eitt sé nefnt.
Aðeins er greitt eitt verð og þá er innifalin máltíð í hlaðborði,
drykkur með mat og kaffisopi eftir matinn.
Einnig er boðið upp á að taka með sér en þá er hægt að velja um
2 stærðir af bökkum.
|
OPNUNAR TÍMAR:
Virka daga
11:30 - 20:30
Laugardaga
11:30 - 16:00
Sunnudaga
Lokað
Sími:
588-0222
Fax:
588-0221
Heimilisfang:
Faxafen 9
108 Reykjavík
Netfang:
salatbarinn@salatbarinn.is
|